04janúar

2008.

Gleðilegt nýtt ár allir. 2008 gengið í garð og á þessu ári verð ég 18 ára vúhú.
Allt líður svo hrikalega hratt, bráðum verð ég komin á elliheimilið að reykja hass alveg eins og ég ætla mér.
En eins og stendur er skólinn að fara byrja svo að ég á ekki eftir að blogga strax, vegna þess að ég ætla að koma mér vel inní námið og standa mig!! Beta koma svo, við rúllum þessu upp! jajajjaja

þannig bara hafðiði það gott þanga til næst. kristín lind
04. janúar 2008 klukkan 00:33
Kristín Lind
Engin athugasemd
27desember

Svell&kuldi.

Jólin mín voru mjög fín. Góður matur-mmm rjúpur í krústæðum og jólaöl. Var sátt með gjafirnar, nenni nú samt ekki að skrifa þær hérna upp, er ekki mikið fyrir það get ég nú sagt ykkur.
Kom mér nú á óvart hvað ég er búin að spila mikið þessi jól, er ekki heldur mikið fyrir að spila en ég er búin að vera mjög dugleg í því og spila ég nú mónapólí sem er rosa skemmtilegt finnst mér.
EN vitiði hvað ég fékk í jólagjöf? Bókina Hvernig á að vera prinsessa!! Var ýkt ánægð. Bleik og falleg.
Systir mín hún Oddný sá hana í búð á Ak og hugsaði strax til mín sem er mjög fyndið og hún gaf mér hana í jólagjöf ásamt Hauki og Von.. Mér fannst það mjöööög gaman - flottasta bók sem ég hef séð. tíhí
Mun varðveita hana mjög vel og fer hún með mér hvert sem ég fer. Lesa hana á hverju kvöldi fyrir hana Betu mína eftir áramót. Lýst þér ekki vel á það? Verðum aaalgjörar prinsessur. En nóg um það.
Ég kíkti í smá fyrirparty heim til Sifjar í kvöld, tók svo smá rúnt með Sonju, Guðna og Þórdísi sem meðal annars er að fara beila á áramótum hérna á Seyðis, hún ætlar að flýja til Rvk, litla stelpan búin að flytja frá Spáni til Rvk sem mér lýst bara helvíti vel á. Hitti svo Svandísu á leiðinni heim, skrapp smá rúnt með henni og sagði hún mér þær gleði fréttir að hún muni vera á Egs eftir áramót. Sem er magnað.
Næsta ár leggst nú bara mjög vel í mig, ætla að standa mig í lærdómnum í þetta skipti.
En eins og sést er ég hérna glaðvakandi heima hjá mér á laugardagskveldi meðan allir eru á balli annaðhvort hérna á Seyðis eða á Esk, allir drukknandi í snjó og áfengi en ekki ég, ég er undir heitri sæng að kúra með Von og + að eyða engum pening, mér finnst það alveg frábært.
Svo er maður náttúrulega að spara sig fyrir áramótaDJ hér á Seyðis legg til að ALLIR mæti.

Jæja ætli sé ekki komið nóg í bili.  Gleðilega jól og farsælt komandi nýtt ár
                                                                                                                    kveðja Kristín jólasveinn.
27. desember 2007 klukkan 03:20
Kristín Lind
4 athugasemdir
10desember

Ný færsla já.

Ætli það sé ekki kominn tími á smá blogg hjá mér. - Jú ég held nú það. Hef nú samt ekki mikið að segja.
Fór til Akureyrar á fimmtud. það var rosalega fínt og rólegt. Verslaði jólagjafir, hitti Von í fyrsta skiptið, fór í klippingu og er orðin ljóshærð - loksins, fór á hundasvæðið með Oddnýju og Hauki. Það var rosalega gaman, sjá Von svona ánægða og fuullt af öðrum hundum. Hitti pabba minn sem var mjög fínt, fór í mat þangað, fékk mér Subway mmm og Dominos, fór seint að sofa, svaf stundum svolítið lengi, tók íbúðina þeirra Oddnýjar og Hauk í gegn ásamt Oddný. Svo hafði ég það bara rosalega rólegt og fínt :)
Hrikalega góð helgi.
Keyrði svo hrikalega þreytt hingað austur, ekki ein í þetta skiptið heldur fylgud mér Bastían og Casper krúttin. Fyndið, Bastían mjálmaði bara ef ég hnerraði eða hóstaði, svo líka þegar ég var að syngja, held hann hafi ekki fýlað það. tíhí... Gott að vera komin heim, hitta Natalíu og múttu mína. Allt orðið hriiikalega jólalegt hérna á heimilinu, sem er svo kósý! Get ekki beðið til jólanna. Keypti mér segja jólagjöf handa Natalíu minni og vítamín, hún þarf á því að halda. :P OG Haukur Besti lét geislaspilara í bílinn ;D jeijjj
Svo ætla ég nú bara að fara í laaaaanga og heiiiiita sturtu, LOKSINS HEIMA hjá mér, allt komið í lag og rooosalega flott inná baðherberginu og náttúrulega eldhúsið orðið ýkt flott.
Get líka ekki beðið þanga til Oddný, Haukur og Von koma 19 eða 20 des, maargir á heimilinu þá.
Það verður skrautlegt, samt svo gaman.
En held þetta sé orðið gott í bili, er eiginlega ekki í blogg stuði enda lítið hægt að segja frá, nema þessari yndislegu helgi. Sakna þeirra allra strax. :*
                                                                      Hafið það gott börnin mín. Kristín sem er ljóshærð :)

10. desember 2007 klukkan 17:50
Kristín Lind
5 athugasemdir
03desember

Ég er jólasveinninn.

Ég veit ég veit, enginn vissi að ég væri jólasveinninn en núna vitið það & þið fáið ekkert í skóinn, óþekku!
Það er kominn 3.desember, líður allt svo hriiikalega hratt, bráðum verða jólin búin, áramótin búin og skólinn byrjar. Hlakka til að byrja í skólanum! Læra, vera dugleg. Ætla svo sannarlega að vera dugleg! Ójá!
Er hætt í vinnunni, þannig ég hef bara verið að taka til, baka, jólaskreyta og fl.
Rosalega fínt að fá langt frí þanga til maður byrjar í skólanum. Ætla svo að skella mér til Akureyrar næstu viku, kíkja á pabba og verlsa jólakjólinn kannski og kannski pínu meira. -tíhíhí. Verð samt að spara!
Eins og þið sjáið er ég búin að búa til jólabanner, ekkert rosa sérstakur en samt jólalegt, bý kannski til nýjan með fleiri litum, þetta passaði svona við núna :) Svo líka nýj mynd þarna í notandi!
Ég hef ákveðið að gefa ekki vinum mínum jólagjöf, heldur bara jólakort. Voru flestir sammála mér um að eiga ekki mikinn pening og þannig, svo ég var mjög sátt. Spara! Ætla bara að kaupa fyrir fjöldskylduna.
Ef hún Natalía mín er ekki sætust þá veit ég ekki hvað. Hún er búin að vera hangandi í mér í allan dag. Þá meina ég hangandi! Var alltaf að láta mig taka sig upp, alveg eins og lítið barn. Elska hana svo mikið!
Veit að þið haldið að þetta sé bara köttur, en þetta er ekki bara köttur. Hún hefur svo mikinn persónuleika að hálfa væri nóg, ef þið bara mynduð koma í smá stund heim til mín og sjá hana,þá mynduði taka eftir því.
En nóg um það! Ætla að fara horfa á Extreme Home edition og gráta smá, svo halda áfram að taka til.

                                                                                                       
Jólakveðja. Kristín Jólasveinn.

03. desember 2007 klukkan 20:25
Kristín Lind
6 athugasemdir
28nóvember

Tileinkað þér April :*

Þá er komið að 28.nóvember, afmælisdegi April.
Ég hef nú upplifað afmælisdaginn hennar lengur en hún sjálf - grííín.
Samt búin að upplifa hann mörgum sinnum og alltaf góð tilfinning á þessum degi.
Get ekki hætt að hugsa mér hvað mig langar mikið að knúsa þig, vera hjá þér í Rvk.
Geta hitt þig alltaf eins og ég vil. Ég vil ekki að þú eignast betri vinkonur en mig. Ji ég er eingingjörn.
Ég vil samt að þú hringir í mig þegar þér líður e-ð illa, þú allavegana veist að þú getur það ástin mín.

With so much to say,
it's hard to know where to start.
What I want you to know
is that I love you,
and you hold a very special place in my heart.

Friends like you are precious and few,
in so many ways I thank you,
you are my guardian angel, and you mean the world to me,
I am so lucky to have found you.

              

Til hamingju með afmælið ástarengill ;* Ég elska þig!
Þín Kristín Lind!
28. nóvember 2007 klukkan 17:01
Kristín Lind
7 athugasemdir
19nóvember

Hvað er uppi hundur?

Og það varð blogg.
Helgin hjá mér var fínasta fín! Gerði ekki neitt á Föstud., bara hanga með múttu elskunni.
Fór snemma á laugard. á Reyðafjörð til Betu minnar ;* Hræðilegt veður en ekkert stoppaði mig! Ég keyrði á litla-rauð í óveðrinu og komst heil að höldnu heim til Betu!
Skelltum okkur svo  í frábært 80's partý heima hjá Thelmu, Heimi, Guja og þeim. Magnað partý!
 Beta aaalveg með þetta, hrundi um öll gólf haha. ;) Allir rosa hressir, aðrir sem heltu kertavaxi útum allt, hinir í singstar, sumir að horfa uppí loftið á öll ljósin og restin að dansa.
Ég og Beta enduðum svo að fara bara ekkert heim. Enda var veðrið að fá e-ð brjálæðiskast!!
Sunnud. vöknuðum við öll snemma og fórum að letingjast e-ð, ákvöðum svo að labba í kuldanum í Olís til Huldu að borða. Það var gooooott. Sunnud. einkendist af South Park, Næturvaktinni og taka í handbremsuna. Svo kúruðum við Beta og Hulda hjá Betu og sofnuðum. Beta þú varst alltaf að hlæja uppúr svefni!! haha, gleymdi að segja þér það... jiii var alltaf að vakna við einhvern brjálæðist hlátur-partýdýr!
Keyrði svo snemma heim á mánud. því sunnud. var ekki færlegur fyrir litla-rauð og mánud. er letingjadagur. Fór heim til Sifjar og við fórum í sms. - Ég elska Sims2.
1.des næstu helgi! újé, get ekki beðiiiiiið. ALLIR að mæta sem að manni kæta. Ji svo góð í að ríma.

Síja píps.
19. nóvember 2007 klukkan 20:13
Kristín Lind
6 athugasemdir
09nóvember

Silent Night.

Hljóðlegt og rólegt kvöld hjá mér, sem er mjög fínt.- Já fínt.
Sit fyrir framan imbann að horfa á hundleiðinlega mynd á stöð2. Vælu, skælu mynd!
Vakna snemma á morgun, hálf 8 og hananú! Vinna vinna vinna.
Fór uppá vist í gær, gisti hjá Viktori elskunni sem var mjög skrautlegur um nóttina.
Viljið ekki einu sinni vita hvað þessi strákur gerði, þannig við höldum þessu í óvissunni.
Karen alltaf jafn skemmtileg þegar maður horfir á mynd með henni! -Sofnar strax.
Vorum nýbyrjaðar að horfa á Svínasúpuna, var hún þá ekki hrjótandi við hliðiná mér, þá fór ég bara niður til Viktors að lúlla eða reyna lúlla! Það tókst á endanum. Fór svo snemma í morgun til námsráðgjafa í ME og sótti endanlega um skóla og í hvaða fög. Jeij fer í Sálfræði.
Svo styttist í 1.des, Ljósbrá svo rómantísk að bjóða mér(samt borga ég? hversu fáramlegt!) meina Ljósbrá common! En jæja, ætli ég sætti mig ekki við það. 
Jæja Elísabet Arnfinnsd. þú þarft að umbera mig í heila önn. Það verður geðveikt. Þarft líklega að vekja mig á hverjum morgni og sjá til þess að ég mæti í tíma. Tíhí ;)
                                                                                                   yfir og út - Kristín Lind! 
09. nóvember 2007 klukkan 23:01
Kristín Lind
16 athugasemdir
27október

Ætlarðu að eiga afmæli við þetta?

Hæhæ grislingarnir mínir, það er komið að bloggi. - Mikilvægu bloggi(grín)
Ég var að vinna í dag, vaknaði eldhress kl 10 mín í 8 og var mætt í vinnuna 5 mín 8 - SUPERWOMAN
Páll hinn frægi Óskar er í kvöld á Neskaupsstað og ætlar mín að vera driver! Er mjög stolt af mér.
Er að vera driver fyrir Söru Dís, Systu og Maríönnu. Verður gaman að vera edrú og mæta svo hress í vinnuna á sunnudagsmorgni kl 8. Klárlega!
Nú er allt að gerast í eldhúsinu hérna heima á Túngötunni. Verið að rífa eldhúsið og mála og gera nýja innréttingu og svo rífa baðið -  Læti bara. Kemst ekki í sturtu í hálfan mánuð. Kíki kannski í sturtu heima hjá ömmu ef ég virkilega þarf þess, hoho.
Ég elska káta gamla fólkið á sjúkrahúsinu. Alltaf svo hress og ánægð með lífið. Mig langar samt ekki að verða gömul!!

Hef alls ekkert meira að segja. Ætla að drífa mig í sturtu og fara svo til Ljósbráar elskunnar minnar!
Vona að sjá sem flesta á balli í kvöld. Allir edrú og læti.
                                                                                              -yfir og út-  Kristín Lind

27. október 2007 klukkan 16:55
Kristín Lind
9 athugasemdir
10október

Hæj? Halló? Er einhver þarna?

Vona það nú.. því ég Kristín er að blogga? Jeb, alveg satt. Engin lýgi.
Það sem gerist í mínu venjulega lífið er mjög lítið. Vinna-Sofa-Borða og framv.
Ég var í mínum rólegheitum að fá mér cocopuffs þegar ég sá á léttmjólkinni minni að þar væri grein um ,,einelti,, - Mér fannst það pínu skrítið á mjólkurfernu.
Svo þegar ég var sest niður inní stofu og en í mínum rólegheitum fór ég að hugsa um hvað barnatímarnir eru orðnir ofbeldishneigðir!
Muniði eftir því í "gamladaga"  þegar maður vaknaði á morgnana og sast í sófann að horfa á barnatímann? Þá var þetta svo saklausir og skemmtilegir barnatímar, en núna.. úfh!
Hvernig á þetta eftir að vera eftir 10 ár? K.. nei ætla ekki einu sinni að segja það.
Hef ákveðið að eiga ekki sjónvarp heima hjá mér þegar ég eignast börn. Og hananú!
En úr einu í annað....
Óvissuball á föstud. Og bara sérstakur fjöldi af miðum seldur? Pínu skrítið.
En hvað um það, þá verða þeir sem fá ekki miða að frjósa úr kulda fyrir utan.
Rosalegt fjör ha? Magnað. Vonandi mæta sumir ekki. Nei, grín. Bara smá eftirherma.
tíhí.. soddan prakkari. Smá brandari.
Hvað um það en og aftur, ætla að halda áfram að pússa skóna mína.
                                                                                                         
-yfir og út-
10. október 2007 klukkan 17:58
Kristín Lind
7 athugasemdir
11september

ég að blogga

Vika síðan ég kom til landsins og sakna ég strax Park Rabids.
Þessar tvær vikur í USA voru æði. Hitta ættingjana sem ég hafði ekki hitt í laaangan tíma var yndislegt.
Sæta sæta frænka mín hún Mæja Kristín er svo mikið krútt, hékk alveg í mér eins og lím. Sem var sætt.
Hún er með fallegasta hár sem ég hef séð, nær niður að rassi, svo ljóst - váhh!
Svo frændur mínir Vignir og Daniel vá svo gott að hitta þá, svo breyttir og sætir.
Emma tvíburasystir mömmu yndisleg eins og alltaf og maðurinn hennar David líka. Allt svo gott þarna úti!!
Verslaði fullt, lá ekki nógu mikið í sólbaði samt - það var bara því ég hafði svo mikið að gera.
Svo áttu þau svona Villys eld gamlan jebba, rauðan og sætan. Ýkt gaman þegar ég og Daniel fórum útí skóg í toffærur, gott að finna heitann vindinn fljúga um hárið þegar við keyrðum - grín, ég er svo væmin.
Alltof góður maturinn heima hjá þeim. mmmmm, sakna matsins.
Svo fór ég á ruðningsleik með Daniel og vinum hans, það var rosalega gaman! Hef aldrei séð svona nema í bíómyndum. Allt alveg eins. Með þessa hjálma og í þessum þröngu þröngu buxum - jimminn eini!
Það var mjög gaman að horfa á svona fótbolta.
Sakna þess að vera nýbúin að borða kvöldmat, vera búin að fá mér nokkur glös og fara svo í sauna og beint oní vatnið - það var svoooo gott og afslappandi! Það ættu allir að prófa það.
Úfh að fljuga í 5-6 tíma, keyra svo í 4 tíma til Park Rabids það var hrææðilega þreytandi, en þess virði!
Þetta var allt æðisleg, ferðin var vel heppnuð og yndisleg. Hef ekkert vont að segja um þessa ferð!
Kíktum svo aðeins í Mall of America á leiðinni heim en þá vorum við svo þreytt og ómöguleg því við hugsuðum okkur að þurfa fljúga heim, svo ég keypti ekkert þar. Samt sem áður hriiikalega stórt mall!
Ætla nú ekki að gleyma að daginn áður en við fórum, fóru ég og mamma að fá okkur tattoo, já mamma fékk sér - algjör hetja tíhí. Ég fékk mér nú líka gat í tunguna - það var fyndið hvað ég fann ekkert fyrir því!
Fékk mér fiðrildi rétt fyrir ofan hægri ökklann að utanverðu og mamma fékk sér svo fallegt hjarta með fiðrildi á, á hægri öxlina. Ohh við erum svo miklir töffarar!
Nóg um þessa ferð!
Núna tekur alvaran við! Ég fer á morgun að sækja um vinnu á sjúkrahúsi Seyðisfjarðar, líklega ræstingu og þvottahús - það verður líklega bara fínt.
Er búin með ö1 og ö2, sem betur fer! Svo dreeep leiðinlegir tímar, en þess virði! Bílprófið bara á næstunni.
Jeij!!
þetta er nóg í bili. Nenni ekki meira. Eins gott ég fæ comment eftir svona langt blogg!!


kristínlind

11. september 2007 klukkan 18:50
Kristín Lind
11 athugasemdir

Me? Yes! Me!

  • Nafn: Kristín Lind
  • Kennitala: 2409903779
  • Netfang: krissa_11@hotmail.com
  • Staður: Seyðisfjörður
  • Atvinna: Ekkert.
  • Hjúskaparstaða: Lausu.
  • Um mig: 17.ára stúlkukind frá Seyðisfirðinum Fagra. Hef rosalega gaman af að skemmta mér og vinir mínir og fjöldskylda er mér allt.

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...